29. júní 2017
Alcoa Fjarðaál vottað samkvæmt jafnlaunastaðli
Alcoa Fjarðaál hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt staðli IST 85:2012. Staðallinn er unninn af hópi íslenskra sérfræðinga með það að markmiði að framfylgja lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Í lögunum er skýrt kveðið á um að konum og körlum sem starfa hjá sama atvinnurekanda skulu greidd jöfn laun og skulu þau njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Fjarðaál er fyrsta stórfyrirtækið sem hlýtur vottun á jafnlaunastaðli velferðarráðuneytisins og af því tilefni heimsótti félags- og jafnréttismálaráðherra, Þorsteinn Víglundsson, fyrirtækið og veitti því viðurkenningu á vottuninni. Hann lét þau orð falla að það væri til fyrirmyndar að sjá hvernig Fjarðaál setur jafnréttismál á oddinn og tekur þátt í að brjóta á bak aftur staðalímyndir á vinnumarkaði.
Þorsteinn Víglundsson flutti ávarp hjá Alcoa Fjarðaáli áður en hann afhenti forstjóra fyrirtækisins viðurkenningu fyrir vottun jafnlaunastaðals.
Alcoa Fjarðaál er eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins með 550 starfsmenn og um 350 verktaka. Hlutfall kvenna er 25% sem er það hæsta sem þekkist innan álvera Alcoa. Guðný Hauksdóttir framkvæmdastjóri mannauðsmála sagði á fundinum með félags- og jafnréttismálaráðherra að hjá Fjarðaáli sé litið á innleiðingu jafnlaunavottunar sömu augum og innleiðingu annarra gæða- og stjórnkerfa sem stuðla að því að gera vinnustaðinn betri og eftirsóknarverðari. Jafnlaunavottun er staðfesting á því að hjá fyrirtækinu er til staðar starfaflokkun þar sem störf hafa verið verðmetin út frá mikilvægum þáttum.
Guðný sagði einnig: „Það hlýtur að vera traustvekjandi fyrir starfsfólk að fá staðfestingu á því að launaákvarðanir eru ekki handahófskenndar heldur ígrundaðar og rekjanlegar og launakerfið sannreynt með þátttöku í kjarakönnun. Úttektir á jafnlaunastaðlinum munu fara reglulega fram ásamt launagreiningu og úrbætur eru gerðar greinist frávik frá staðli, líkt og í öðrum úttektum sem gerðar eru hjá fyrirtækinu.“
Þorsteinn Víglundsson afhendir Magnúsi Þór Ásmundssyni viðurkenningu fyrir vottun á jafnlaunastaðli.
Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Fjarðaáls sagði í lok fundarins að það væri hluti af samfélagsábyrgð fyrirtækisins að sinna jafnréttismálum með markvissum hætti. Hann taldi það jafnframt vera ávinning fyrir fyrirtækið að fá til starfa breiðan hóp starfsfólks, konur jafnt sem karla, og að við núverandi aðstæður á vinnumarkaði gæti það gefið fyrirtækinu samkeppnisforskot. Unnið er samkvæmt jafnréttisáætlun og meðal annars hafa breytingar á vaktakerfi fyrirtækisins miðað að því að höfða til fleiri kvenna. Einnig sagði Magnús: „Það er trú fyrirtækisins að vottun á jafnlaunastaðli muni hafa jákvæð áhrif á vinnustaðinn, byggja upp frekara traust starfsmanna og auka helgun þeirra.“
Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Fjarðaáls, Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri mannauðsmála og Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra.