29. nóvember 2019
Styrkúthlutun hjá Fjarðaáli – samtals úthlutað 21 milljón
Alcoa Fjarðaál úthlutaði samfélagsstyrkjum til nærsamfélagsins að upphæð 17,7 milljónir króna í gær, þann 28. nóvember 2019. Við sama tilefni var úthlutað styrkjum frá íþróttasjóðnum Spretti að upphæð 3,5 milljónir króna en ÚÍA heldur utan um sjóðinn sem Alcoa fjármagnar. Úthlutunin fór fram í Egilsbúð í Neskaupstað og heppnaðist vel.
Alcoa Fjarðaál er stórt fyrirtæki í litlu samfélagi og því fylgir mikil ábyrgð. Einn angi af okkar samfélagsábyrgð er að styðja við verkefni í nærsamfélaginu. Við erum stolt af því að geta hjálpað góðum hugmyndum að verða að veruleika. Sumir styrkirnir frá okkur fara í að auka öryggi í landsfjórðungnum sem er vel þar sem eitt af aðalsmerkjum Alcoa er að tryggja öryggi starfsfólks, verktaka og gesta. Veittir voru átta styrkir þar sem verkefnin höfðu það markmið að auka öryggi íbúa og gesta á Austurlandi og fóru flestir þeirra til björgunarsveitanna á svæðinu. Þá voru veittir margir styrkir til menningartengdra verkefna og til að efla menntun og tómstundaiðkun barna.
Tveir styrkþegar voru fengnir til að segja stuttlega frá verkefnunum sem styrktum. Annars vegar var það Búnaðarsamband Austurlands sem hlaut styrk að upphæð 800 þúsund krónur til að endurútgefa ritið Sveitir og jarðir í Múlaþingi sem er Austfirðingum að góðu kunnugt. Jóhann Gísli Jóhannsson frá sambandinu greindi frá því að söfnun svo verkefnið megi verða að veruleika standi enn yfir en ljóst er að þörf er á að uppfæra ritið þar sem langt er liðið frá útgáfu síðustu bókar. Hins vegar fjallaði Katrín Birna Viðarsdóttir frá Félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar um verkefnið Kuldabola sem er árleg hátíð þar sem ungmenni af öllu Austurlandi koma saman í Fjarðabyggðahöllinni, skemmta sér saman og fá fræðslu um mikilvæg málefni. Alcoa hefur stutt við verkefnið frá árinu 2014 og með stuðningnum er hægt að halda kostnaði sem þátttakendur greiða í lágmarki. Verkefnið hlaut að þessu sinni 500 þúsund króna styrk.
Hæstu styrkir ársins runnu annars vegar til Barnamenningarhátíðarinnar BRAS á Austurlandi, ein milljón króna, og hins vegar til Félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði, 1,3 milljón, en þar er unnið ötullega að því að rannsaka rústir bæjarins Stöðvar.
Dagskráin var brotin upp með lifandi tónlistarflutningi sem þau Jón Hilmar Kárason og Soffía Björgúlfsdóttir sáu um af sinni alkunnu snilld. Flutningur þeirra á laginu Vindur kom gestum í rétta aðventuskapið.
Alcoa Fjarðaál vonar að allir styrkirnir komi að góðum notum og við hlökkum til að fylgjast áfram með þessum góðu verkefnum. Viðburðurinn var sendur út beint á Facebook síðu Fjarðaáls og þar má nálgast upptöku af honum.
Hér eru nokkrar myndir frá styrkjaafhendingunni en fyrir neðan þær er tafla sem sýnir styrkþega og verkefni.
Austurbrú ses | BRAS menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi í annað sinn. |
B. G. Bros (útgáfa og tónleikahald) | Tónleikar til að kynna sólóplötu. Guðmundur R. Gíslason |
Björgunarsveitin Ársól | Kaupa nýjar skyndihjálpartöskur í farartæki sveitarinnar (5 stk.) |
Björgunarsveitin Bára | Uppgerð á harðbotnabát félagsins og búnaði honum tengdum |
Björgunarsveitin Brimrún, Eskifirði | Tækjakaup á 2 nýjum fjórhjólum með beltabúnað fyrir veturinn og Ford bifreið með palli |
Björgunarsveitin Gerpir | Endurnýjun á búnaði við nýja bryggju við húsnæði sveitarinnar. |
Björgunarsveitin Hérað | Græja upp beltabíl sem kostar 12 milljónir |
Björgunarsveitin Sveinungi | Ráðast í endurbætur á neyðarskýli í Brúnavík v/Borgarfj.eystri |
Bláa kirkjan sumartónleikar | Halda 21. tónleikaröðina í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði sumarið 2019. |
Bókstafur ehf | Útgáfa bókar um flug á Austurlandi. |
Búnaðarsamband Austurlands | Endurútgefa ritið Sveitir og jarðir í Múlaþingi |
DDT - Pönkviðburðir | Tónlistarhátiðin „Orientu in Culus" í annað skipti. |
DDT pönkviðburðir | Halda V-5 bílskúrspartý, röð viðburða á sviði tónlistar í Neskaupstað |
El Grillo félagið | Auka við sýningu sem styrkt var í fyrra, hreinsa fallbyssu. |
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs | Endurbyggja gamla húsið í Laugavalladal, norðan Kárahnjúka. |
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs | Endurbyggja gamla húsið í Laugavalladal, norðan Kárahnjúka |
Ferðaklúbburinn 4x4 Austurlandsdeild | Árleg haustferð með skjólstæðinga félagsþj. á Austurlandi |
Ferðamálahópur Borgarfjarðar eystri | Gera 400 göngustikur fyrir gönguleið um Kækjuskörð |
Félag áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarf. | Áframhaldandi rannsóknir á bæjarrústum í Stöð á Stöðvarfirði |
Félag áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði | Fornleifauppgröftur í Stöð á Stöðvarfirði |
Félagsmiðstöðin Drekinn (Vopnafj.hreppur) | Búa til hópastarf fyrir stráka 12-15 ára á Vopnafirði. |
Félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar (Fjarðabyggð) | Ungmennahátíðin Kuldaboli 2019 |
Fimleikadeild Hattar | Ný loftdýna sem er notuð af öllum hópum fimleikadeildar Hattar |
Fimleikadeild Leiknis | Dansgólf (búið að fjármagna að hluta) |
Foreldrafélag Grunnskóla Borgarfjarðar eystra (Grunnskóli Borgfj.eystri) | Útbúa umhverfið í kringum útikennslustofu fyrir skólann. |
Foreldrafélag Grunnskóla Reyðarfjarðar | Kaupa forritunargræjur til að nota í kennslu. |
Gunnarsstofnun (Rithöfundalest) | Rithöfundalestin á Austurlandi. |
Hestamannafélagið Blær | Æskulýðsdagar sem eru fyrir börn á aldrinum 16 ára og yngri. |
Holan æfingaraðstaða | Uppbygging æfingar- og upptökuaðstöðu á Eskifirði |
Hollvinasamtök FSN í Neskaupstað | Gulumælir til að mæla gulu hjá nýburum |
Íbúasamtök Breiðdals | Lucas hjartahnoðtæki í sjúkrabíl Breiðdalsvíkur í samstarfi við sjúkrafl.menn á Breiðdalsvík |
Íbúasamtök Eskifjarðar | Setja hreystitæki með gönguleiðum út á sveit. |
Íbúasamtök Fáskrúðsfirðinga | „Opinn dagur“ á Hjúkrunarheimilinu Uppsalir. |
Jaspis, félag eldri borgara á Stöðvarfirði | Áheitaganga til styrktar Krabbameinsfélagi Austfjarða |
Kammerkór Egilsstaðakirkju | Vínarklassík Kammerkórs Egilsstaðakirkju á aðventu |
Leikfélag Fljótsdalshéraðs | Setja upp Línu Langsokk |
Lið fyrir lið | Uppsetning á Skarfi sem er nýtt íslenskt sviðsverk |
Lionsklúbbur Eskifjarðar | Opið hús og tónleikar í Hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð á Eskifirði. |
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs | Setja upp stóra og þverfagleg sýningu |
Menntaskólinn á Egilsstöðum | Kaup á búnaði vegna stofnunar tæknismiðju í ME |
Minjasafn Austurlands | Sýning: Eftirlýstir Íslendingar á 17. og 18. öld í Safnahúsinu á Egs. |
SAM-félagið, grasrótarsamtök skapandi fólks á Austurlandi | Pop up listhandverks/hönnunarviðburður á Austurlandi |
Samtökin Eiðavinir | Gerð heimildarmyndar um sögu skólahalds á Eiðum |
Sinfóníuhljómsveit Austurlands | Tónleikar á Eskifirði og Egilsstöðum |
Sjósportklúbbur Austurlands | Kaup á björgunarvestum og göllum f. börn og ungmenni. |
Skíðafélag Fjarðabyggðar | Kaupa um 100 stangir fyrir næsta vetur |
Skíðafélagið í Stafdal | Kaup á gönguskíðaspora f. gönguskíðabraut í Stafdal |
Skjala- og myndasafn Norðfjarðar (Fjarðabyggð) | Samstarfsverkefni Héraðskjalasafn Austurlands. Skanna gömul skjöl (Helgustaðahreppur) |
Tónleikafélag Austurlands | Taktur - tónlistarhátíð á Fljótsdalshéraði |
Tónleikafélag Austurlands | Tromman – tónlistarhátíð |
Tónleikafélag Austurlands | Standa fyrir styrktartónleikum til handa geðsviði HSA |
Tónlistarsjóður Egilsstaðakirkju (Egs.kirkja) | Hreinsun og lagfæring á orgeli |
Tækniminjasafn Austurlands | Fjölskylduhátíð sumarið 2019 |
Ungmenna - og íþróttasamband Austurlands UÍA | UÍA farandþjálfun 2019 |
Ungmennafélagið Valur | Pönnufótboltavöllur á lóð Grunnskóla Reyðarfjarðar (fylgiskj.) |
Ungt Austurland | Náms- og atvinnulífssýningin Að heiman og heim |
Vegahúsið - ungmennahús (Fljótsdalshérað) | Aðstaða fyrir fólk á Austurlandi til að taka upp hlaðvarpsþætti. |
Verkmenntaskóli Austurlands | Halda Tæknidag fjölskyldunnar |